Tökur á þáttaröðinni Fortitude eru enn í fullum gangi, en þær ganga vel að sögn Snorra Þórissonar hjá kvikmyndaframleiðandanum Pegasus. Hann segir að tökudagarnir séu orðnir hátt í þrjátíu. Tökurnar hafa farið fram allt frá því í janúar en munu standa fram í lok maí.

Eins og greint hefur frá leika stórstjörnurnar Stanley Tucci Michael Gambon, sem lék Dumbledore í Harry Potter og Sofie Grabol úr Forbrydelsen í þáttunum.

„Þetta bara gengur vel og mikil jákvæðni hérna á Reyðarfirði og í nærsveitum. Íbúar eru jákvæðir og hjálplegir þannig að það er alveg frábært,“ segir Snorri.