Haukur Gíslason hefur verið ráðinn til Glacial Water vatnsframleiðslufyrirtækisins. Hann vann síðast sem sölustjóri sjónvarpsefnis hjá LazyTown Entertainment þar sem hann starfaði í sex ár. Hann sá meðal annars um sölu á vörum félagsins í Skandinavíu.  Áður starfaði hann sem sölu- og markaðsráðgjafi í 13 ár hjá mörgum leiðandi íslenskum fyrirtækjum í markaðsmálum, svo sem Icelandair, Tal og Ríkissjónvarpinu.