Haukur Oddsson settist í forstjórastólinn hjá Borgun í október árið 2007. Hann tók við af Ragnari Önundarsyni, sem gegnt hafið starfinu í 9 ár. Nú er komið að leiðarlokum hjá Hauki því hann hefur ákveðið að hætta störfum. Að ósk stjórnar Borgunar mun Haukur sinna störfum forstjóra þar til eftirmaður hans hefur verið ráðinn.

„Þetta hefur verið frábær tími og fyrirtækið vaxið og dafnað," er haft eftir Hauki í tilkynningu á vefsíðu Borgunar . „Borgun hefur breyst úr því að starfa eingöngu á Íslandi með rétt innan við 30% markaðshlutdeild og 70 starfsmenn – í að verða alþjóðlegt, tæplega  200 starfsmanna greiðslumiðlunarfyrirtæki með starfsemi í 4 löndum og með um 50% markaðshlutdeild á Íslandi.  Á þessum tíma hefur virði félagsins margfaldast og eiginfjárstaða þess styrkst til muna eða hækkað úr rúmum 8% í um 23% og það á tímum mikils vaxtar.  Auk þess hefur félagið greitt eigendum sínum, sem er óbeint að stærstum hluta íslenska ríkið, ríkulegan arð.

Ég kveð Borgun með þakklæti og stolti. Þar starfar einvala hópur starfsmanna. Borgun er frábært fyrirtæki sem á framtíðina fyrir sér með ótæmandi möguleika. Þá vil ég sérstaklega þakka stjórn félagsins fyrir einstakt samstarf.“