Haukur Sveinsson og Hlynur Þór Jónasson bætast við sem nýjir starfsmenn í starfsmannahóp Corivo ehf. Haukur hefur verið ráðinn sem vörustjóri og teymisþjálfari og Hlynur Þór sem forritari.
Haukur Sveinsson hefur alþjóðlega vottun sem Certified Scrum Master og Certified Scrum Product Owner og starfaði síðast sem rekstrarstjóri hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Kolibri frá árinu 2014.
Hann útskrifaðist með B.A.-gráðu í stjórnmálafræði með fjölmiðlafræði sem aukagrein frá Háskóla Íslands árið 2011 og lauk meistaranámi í stjórnun í skapandi fyrirtækjum við University of Warwick í Bretlandi árið 2013.
Hlynur Þór Jónasson býr yfir 17 ára víðtækri reynslu af hugbúnaðargerð, þar af 8 ár fyrir ferðaiðnaðinn, síðast hjá Gray Line. Hann er jafnframt annar stofnandi hugbúnaðarhússins Xodus, þar sem hann þróaði fjölbreyttar lausnir fyrir ferðaiðnaðinn.
Corivo, áður ODIN Software, hefur þjónustað ferðaiðnaðinn í 15 ár, en kjarnahugbúnaður fyrirtækisins, Corivo Travel Platform og tengdar sérlausnir, styrkja inniviði og bæta rekstur fyrirtækja í ferðaþjónustu með aukinni sjálfvirkni í bakvinnslu og öflugri tengigetu við i ytri kerfi og lausnir.
Í hópi viðskiptavina Corivo eru m.a. Ferðaskrifstofa Íslands, Iceland Travel og Wow ferðir. Samhliða vexti í verkefnastöðu og fjölgun starfsmanna hefur Corivo nú flutt í Borgartún 27.