Norska skipafélagið Havila Shipping ASA hefur bætt við sig 19% hlut í KS Havila Saturn. Eftir viðskiptin ræður félagið yfir 42% hlut, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

KS Havila er nú að smíða skip af gerðinni Havyard 842, sem verður tilbúið til afhendingar í október á næsta ári í skipasmíðistöðinni í Leirvik.

Skuldabréf Havila Shipping eru skráð í Kauphöll Íslands.