Samkvæmt upplýsingum frá HB Granda voru skip félagsins með samtals 141.867 tonna afla á árinu 2016 og var aflaverðmætið tæpir 14 milljarðar króna. Þetta er samdráttur í afla upp á rúm 19% milli ára en aflaverðmætið á sama tíma dróst saman um 16%. Þessu er gert ítarlega skil á vef Fiskifrétta .

Uppsjávarskip

Í tölum um afla og aflaverðmæti skipa HB Granda má lesa að uppsjávarskipin tvö, Venus NS og Víkingur AK, voru með samtals tæplega 95.600 tonna afla í fyrra að verðmæti rúmlega 3,7 milljarða króna. Þetta er verulegur samdráttur frá árinu 2015 en þá nam afli þriggja uppsjávarskipa félagsins tæplega 128 þúsund tonnum og aflaverðmætið var tæpir 4,6 milljarðar króna. Þetta samsvarar 25% aflasamdrætti og 19% minni verðmætum en á árinu 2015. Í þessu sambandi er vert að hafa í huga að verulega dró úr loðnuafla milli ára eða alls um 41 þúsund tonn.

Frystitogarar

Frystitogarar HB Granda, sem eru þrír talsins, voru með samtals tæplega 21 þúsund tonna afla í fyrra og aflaverðmæti þeirra var tæpir 5,9 milljarðar króna. Aflasamdrátturinn var ekki nema rúm 2,5% en aflaverðmætið í íslenskum krónum lækkaði hins vegar um rúm 15% milli ára. Ástæðuna má fyrst og fremst rekja til styrkingar krónunnar gagnvart gjaldmiðlum í helstu viðskiptalöndum. Vert er að taka fram að aflaverðmæti frystitogaranna er miðað við FOB verð bæði árin og sömuleiðis gætu tölur breyst örlítið við endanlegt uppgjör fyrir síðustu landanir viðkomandi togara.

Ísfisktogarar

Afli ísfisktogaranna fjögurra dróst saman um rúm 4% milli ára. Hann var tæplega 25.300 tonn að verðmæti rúmlega 4,4 milljarða króna. Það er rúmlega 14% samdráttur milli ára.

Ef litið er á togaraflotann í heild var aflinn tæplega 46.300 tonn að verðmæti tæplega 10,3 milljarða króna. Aflasamdrátturinn milli ára er um 3,5% og verðmæti togaraaflans dróst á sama tíma saman um 15%