IFS greining telur að HB Grandi sé 49,5 milljarða króna virði, sem samsvarar genginu 27,3 krónur. IFS gaf í dag út virðismat sitt á félaginu.

Sölugengi í almennum hluta útboðsins liggur á bilinu 26,6 - 32,5 kr. en lágmarksgengi í opnum tilboðshluta er 26,6.

Almennt útboð á hlutum í HB Granda hófst eftir lokun markaða í gær en lýkur eftir lokun markaða á miðvikudagskvöldið.