Stjórn HB Granda hf. hefur farið þess á leit við Kauphöll Íslands hf. að hlutabréf félagsins verði sem fyrst tekin á skrá iSEC markaðarins um leið og felld verði niður skráning hlutabréfanna á aðallista Kauphallarinnar.

HB Grandi er þar með þriðja félagið sem fyrirhugar skráningu á iSEC markaðinn, en hin félögin tvö eru Hampiðjan og Cyntellect sem nú er í útboðsferli.

Jafnframt er lagt til að umskiptin verið um mánaðamótin september - október.