Stjórn HB Granda hefur ákveðið að setja útboð smíði nýs frystitogara. Togarinn er hannaður af Rolls Royce í Noregi og er 81 m langur, 17 m breiður og hefur lestarrými fyrir um eitt þúsund tonn af frystum afurðum. Þetta kemur fram í tilkynningu HB Granda til Kauphallarinnar.

Búist er við því að ákvörðun um smíðina liggi fyrir í byrjun maí og henni ljúki í árslok 2019. Ekki eru fyrirhugaðar frekari nýsmíðar af hálfu HB Granda.