Stjórn HB Granda hf. hefur ákveðið að ganga til samninga við tyrknesku skipasmíðastöðina Celiktrans Deniz Insaat Ltd. um smíði á þrem ísfisktogurum á grundvelli tilboðs frá skipasmíðastöðinni.

Heildarsamningsupphæðin mun liggja nærri 6,8 milljörðum íslenskra króna, eða rúmum 44 milljónum EUR. Áætlað er að gangi samningar eftir muni fyrri tvö skipin verða afhent á árinu 2016 en það þriðja árið 2017.

Fyrir er tyrkneska skipasmíðastöðin með tvö uppsjávarskip í smíðum fyrir HB Granda.