Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,05% í dag í 460 milljón króna viðskiptum. Mest hækkuðu HB Grandi, um 1,3%, og Nýherji, um 0,72%.

Össur, Reginn og Sjóvá lækkuðu mest, um rúmlega 1%. Flest viðskipti, eða 12, voru með hlutabréf í Reitum. Hins vegar stóð verð á bréfum Reita í stað.

9 milljarða viðskipti voru með skuldabréf í dag og hækkaði verð allra skuldabréfaflokka sem viðskipti voru með, ef frá er talinn HFF150434 sem stóð í stað.