HB Grandi hefur lagt til hliðar framkvæmdir við fiskþurrkun á Akranesi. HB Grandi hætti að þurrka fisk á Akranesi síðastliðinn apríl.

Ástæða þess er vegna erfiðra markaðsaðstæðna í Nígeríu. „[..] markaður fyrir þurrkaðar afurðir hefur verið mjög erfiður vegna lítillar kaupgetu í Nígeríu og virðist ekki vera að sækja í sig veðrið,“ segir í tilkynningu HB Granda til Kauphallarinnar .

Einnig er tekið fram að þegar þurrkun var hætt störfuðu 26 manns við hana. Þrettán af þeim hóp hefur verið tryggð atvinna í öðrum starfstöðvum HB Granda á Akranesi en hinir hafa unnið við tilraunavinnslu í húsi fiskiþurkunarinnar. Þeim hefur nú einnig verið boðin vinna í örðum starfstöðvum félagsins.