Rekstrartekjur HB Granda á þriðja ársfjórðungi námu 57,2 milljónum evra og 152,5 milljónum evra á fyrstu níu mánuðum ársins. Tekjurnar hafa þar með hækkað milli ára en þær námu 56,2 milljónum á þriðja ársfjórðungi 2015.

Hagnaður félagsins nam þá 12,7 milljónum evra á þriðja ársfjórðungi ársins, en hann nam 9,1 milljónum evra á sama tímabili í fyrra. Þá nam hagnaður á fyrstu níu mánuðum ársins 25,2 milljónum evra, samanborið við 31,2 milljónir í fyrra. Handbært fé frá rekstri nam 14,5 milljónum evra á fyrstu níu mánuðum ársins, samanborið við 26,6 milljónir evra á fyrstu níu mánuðum ársins 2015.

Heildareignir félagsins námu 457,7 milljónum evra í lok september 2016. Þar af voru fastafjármunir 365,9 milljónir evra og veltufjármunir 91,8 milljónir evra.  Eigið fé nam 249,2 milljónum evra, eiginfjárhlutfall í lok september var 54,4%, en var 62,2% í lok árs 2015. Heildarskuldir félagsins voru í septemberlok 208,5 milljónum evra.

Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi fyrstu níu mánaða árins 2016 (1 evra = 137,18 kr) verða tekjur 20,9 milljarðar króna, EBITDA 5,5 milljarður og hagnaður 3,5 milljarðar.  Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á gengi 30. september 2016 (1 evra = 127,52 kr) verða eignir samtals 58,4 milljarðar króna, skuldir 26,6 milljarðar og eigið fé 31,8 milljarðar.

Skipafloti félagsins var óbreyttur frá áramótum. Á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 var afli skipa félagsins 37 þúsund tonn af botnfiski og 80 þúsund tonn af uppsjávarfiski.