HB Grandi hf. sem á 20% hlut í eignarhaldsfélaginu Deris S.A. í Síle, hefur tilkynnt um að sett hafi verið af stað söluferli fyrir laxeldisfyrirtækið Salmones Friosur S.A. í eigu Deris. Deris á sjávarútvegsfélögin Friosur og Pesca Chile, en félögin reka fiskiðjuver, gera út tvo frystitogara, þrjú línuskip sem frysta aflann og þrjá ísfisktogara í Síle í Suður - Ameríku.

Að auki á Deris fiskeldisfyrirtækið Salmones Friosur S.A. sem rekur laxeldisstöðvar í Síle. Deris S.A. hefur falið Larrain Vial, fjárfestingarbanka í Síle að leita eftir óskuldbindandi tilboðum í Salmones Friosur S.A.

Hagnaður af rekstri Deris árið 2016 var 22,5 milljónir evra og áhrif félagsins á rekstur HB Granda hf. voru jákvæð um 4,5 milljónir evra. Það jafngildir um 564 milljónum íslenskra króna á gengi dagsins í dag.

Hlutdeild HB Granda í afkomu félagsins fyrstu níu mánuðum ársins 2017 var jákvæð um 3,1 milljónir evra, eða sem samsvarar 389 milljónum króna. Bókfært verð eignar HB Granda hf. í Deris S.A. var 22,3 milljónir evra í lok september 2017, eða sem nemur 2,8 milljörðum íslenskra króna.