HB Grandi hf. mun stofna dótturfyrirtækið Atlantic Pelagic B.V. í Hollandi, segir í tilkynningu. Atlantic Pelagic mun kaupa uppsjávarfrystiskipið Engey af HB Granda og gera skipið út til veiða á makríl, hrossamakríl, sardínu og sardínellu úti fyrir ströndum Afríku.

Áætlað er að útgerð Engeyjar flytjist til Atlantic Pelagic í byrjun apríl. Atlantic Pelagic mun vinna í nánu samstarfi við hollenska útgerðarfélagið Parlevliet & Van der Plas og mun það félag einnig annast markaðssetningu afurða Engeyjar.

Stofnun Atlantic Pelagic og útgerð Engeyjar við Afríku mun efla reksturinn og nýta betur þær fjárfestingar, sem félagið hefur yfir að ráða. Með vexti félagsins í kjölfar sameininga liðinna ára hafa áunnist tækifæri, sem verið er að nýta sem best.

Rekstur Engeyjar hefur gengið vel frá því skipið kom fyrst til veiða við Ísland í júní árið 2005. Á árinu 2006 var aflaverðmæti hennar 1.451 milljón króna. Það hefur hins vegar haft áhrif á afkomu hennar, samanborið við vinnslu í landi, að mjölverð hefur hækkað mikið á sama tíma og verð frystrar síldar hefur gefið eftir.

Allri áhöfn Engeyjar verður sagt upp og mun ný áhöfn verða ráðin í Hollandi. Lykilstöður verða mannaðar Íslendingum.