Rekstrarhagnaður HB Granda fyrir afskriftir (EBITDA) nam 19 milljónum evra á fyrri helmingi þessa árs, samanborið við 12,9 milljónir evra á sama tíma í fyrra. Þannig nemur hagnaðurinn 31,5% af rekstrartekjum, samanborið við 21,3% á sama tíma í fyrra.

Hins vegar nam tap félagsins eftir afskriftir 1,4 milljón evra, samanborið við hagnað upp á 0,6 milljónir evra á sama tíma í fyrra.

Þetta kemur fram í hálfsárs uppgjöri HB Granda sem birt var í dag en þar kemur fram að áhrif fjáreignatekna og fjármagnsgjalda voru neikvæð um 12,4 milljónir evra, samanborið við 0,3 milljónir evra á sama tíma í fyrra. Meginskýringin er sögð liggja í gengistapi upp á 10 milljónir evra vegna veikingar evru gagnvart öðrum gjaldmiðlum, sem félagið skuldar í.

Tekjur félagsins á fyrri helmingi ársins námu 60,4 milljónum evra, samanborið við 60,8 milljónir evra árið áður.

Þá kemur fram að tekjuskattur að upphæð 3,9 milljónir evra hafi verið reiknaður samkvæmt framtali í íslenskum krónum, en þar varð gengishagnaður og „verður reiknaður tekjuskattur þess vegna svo hár,“ svo vitnað sé í uppgjörstilkynningu félagsins.

Heildareignir félagsins námu 301 milljón evra í lok júní 2010. Þar af voru fastafjármunir 252,5 milljónir evra og veltufjármunir 48,5 milljónir evra. Eigið fé nam 131,5 milljónir evra og var eiginfjárhlutfall 44%, en var 46% í lok árs 2009. Heildarskuldir félagsins voru í júnílok 169,5 milljónir evra.

Þá nam handbært fé frá rekstri 6,6 milljónum evra á fyrri helmingi ársins 2010, en 13 milljónum evra á sama tíma fyrra árs. Fjárfesting í rekstrarfjármunum nam 6,9 milljónum evra. Fjármögnunarhreyfingar námu 6,6 milljónum evra og voru nettó afborganir langtímalána þar af 5,4 milljónir evra. Handbært fé lækkaði því um 6,8 milljónir evra og var í lok júní 5,2 milljónir evra.