Heathwow flugvöllur ætlar að opna fyrsta rafrettusvæði í heimi. Neysla rafretta verður bönnuð á öðrum stöðum á flugvellinum en Gamucci, rafrettuframleiðandinn á svæði á flugstöðinni og fær að leyfa farþegum að njóta rafrettanna þar.

Reykingabann í Bretlandi tekur ekki til rafretta. Þrátt fyrir það hafa mörg samgöngufyrirtæki og veitingastaðir ákveðið að banna notkun þeirra.