Framkvæmdir við nýja 20 þúsund fermetra viðbyggingu við Flugstöð Leifs Eiríkssonar eru að hefjast og áformað að hún verði tekin í notkun árið 2024. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Áætlaður kostnaður við framkvæmdirnar er 20,8 milljarðar króna. Ljóst er að þetta eru býsna miklar framkvæmdir og til þess að setja kostnaðinn við þær í samhengi kostnaðurinn má benda á að stofnkostnaður við stækkun Búrfellsvirkjunar var áætlaður um 14 milljarðar og kostnaður við Dýrafjarðargöng var um níu milljarðar.

Verkefnið er liður í uppbyggingaráætlun flugvallarins og mun þjónusta við farþega batna og afkastageta aukast og til að mynda mun landgöngubrúm fjölga úr 13 í 17. Verktakafyrirtækið Ístak mun sjá um jarðvinnu vegna viðbyggingarinnar sem verður austur af núverandi flugstöð.

„Það er mjög ánægjulegt að sjá þetta verða að veruleika. Ákvörðun okkar frá í vetur um að auka hlutafé í Isavia sendi skýr skilaboð um að þrátt fyrir tímabundið ástand í heimsfaraldri vissum við að bjartari tíð væri fram undan. Hlutafjáraukningin greiðir fyrir mikilvægum umbótum á Keflavíkurflugvelli og styrkir okkur enn frekar í alþjóðlegri samkeppni um þá farþega sem glaðir vilja ferðast á ný eftir faraldurinn. Um leið er þetta góða verkefni innspýting í efnahagslífið. Fjölmörg ný störf verða til, ekki síst á Suðurnesjum, en það góða svæði mun nú taka við sér af krafti eftir tímabundna lægð í faraldrinum," segir Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, í tilkynningunni.

„Flugstöð er flókinn innviðir. Margt þarf að spila saman og ganga upp," segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. „Með þessari nýju austurbyggingu verður umbylting á farangursmóttöku og á efri hæð fæst meira verslunarrými og biðsvæðið stækkar. Þá bætast við fjögur ný hlið með landgöngubrúm sem er gríðarlega stórt skref í átt að bættri þjónustu við flugfélög og flugfarþega. Hlutafjáraukningin gerði einmitt það að verkum að við gátum stækkað umfang áður fyrirhugaðra framkvæmda og flýtt nokkrum þáttum verksins. Það á eftir að koma sér afar vel í framtíðinni.“

3d viðbygging keflavíkurflugvöllur flugstöð
3d viðbygging keflavíkurflugvöllur flugstöð
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Tölvuteiknuð mynd af nýrri viðbyggingu.