Vodafone á Íslandi (SÝN) og Nordavind hafa skrifað undir samstarfssamning um að skoða samlegð með lagningu á nýjum ljósleiðarasæstreng milli Íslands og Írlands annars vegar og Írlands og Noregs hins vegar. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Vodafone hefur síðustu 2-3 árin unnið að verkefni með Vodafone Group um lagningu á nýjum ljósleiðarasæstreng milli Íslands og Írlands. Eftir mikla undirbúningsvinnu var niðurstaða vinnunnar að best væri að leggja sæstrenginn milli Reykjaness og vesturstrandar Írlands. Nýi strengurinn mun styrkja mjög samkeppnishæfni gagnavera á Íslandi, auka öryggi í tengingum til Íslands og stytta til muna leið gagna til Bandaríkjanna.

Lendingarstaðurinn sem varð fyrir valinu á Írlandi er Killala þar sem Aqua Comms, fyrirtæki sem sérhæfir sig í ljósleiðurum í sjó, á og rekur ljósleiðarasæstrenginn AEC-1 beint til New York í Bandaríkjunum. Vodafone hefur átt í góðu samstarfi við Aqua Comms síðustu 18 mánuði um verkefnið og hvernig það getur bætt tengingar Íslands við Evrópu og Bandaríkin.

Vodafone hefur á sama tíma átt í viðræðum við norska félagið Nordavind sem hefur í hyggju að leggja ljósleiðara frá Þrándheimi í Noregi til Killala undir verkefnaheitinu Celtic Norse.

„Þegar við fórum að ræða við Nordavind sáu báðir aðilar mikil tækifæri í samstarfi verkefnanna. Um sömu leið í sjó er að ræða fyrir umtalsverðan hluta strengjanna sem býr til möguleika á umtalsverðri hagkvæmni við lagningu strengjanna. Einnig voru bæði fyrirtækin sammála um að um einstakt tækifæri væri að ræða til þess að koma á góðri ljósleiðaratengingu milli frændþjóðanna Íslands og Noregs sem hafa augljósa kosti sem hýsingarstaðir fyrir gagnaver. Við erum einnig mjög ánægð með samstarfið við Aqua Comms sem hefur sýnt verkefninu mikinn áhuga og stuðning. Loks er gott að stjórnvöld hafa ákveðið að hefja stuðning við verkefni sem þetta með því að láta framkvæma könnun á sjávarbotni á nýjum streng til Evrópu," segir Þorvarður Sveinsson rekstrarstjóri Sýnar sem rekur Vodafone.

Nordavind er norskt fyrirtæki í eigu sveitarfélaga, orkufyrirtækja ogljósleiðarafyrirtækja í Noregi.

Aqua Comms á og rekur ljósleiðaranet milli Bandaríkjanna, Írlands, Bretlands ogDanmerkur. Félagið er einnig rekstraraðili ljósleiðarakerfa í eigu 3ja aðila. Félagiðer heildsölufyrirtæki (Carriers-Carrier) sem eingöngu selur til tengingar í heildsölu.

Vodafone Group (VFG) er eitt stærsta fjarskiptafyrirtæki í heimi og er meðumfangsmikla starfsemi víða umheim. Sérfræðingar frá VFG sæstrengjateyminuhafa unnið með Vodafone á Íslandi að verkefni síðustu ár. Teymið hefur komið aðfjölda sæstrengjaverkefnum á síðustu 3 árum.