Uppbygging á 620 íbúða byggð sunnan Smáralindar í Kópavogi, í 201 Smára, gengur vel en gert er ráð fyrir að fyrstu íbúar geti flutt inn seint næsta haust að sögn Ingva Jónassonar, framkvæmdastjóra Klasa, sem sér um framkvæmd verkefnisins. 201 Smári og Lind fasteignasala hafa ákveðið að hefja samstarf um sölu íbúða í 201 Smára. Samkomulag þess efnis var undirritað í dag.

,,Um er að ræða fjölbreytt form íbúða, 2ja herbergja og upp í 5 herbergja íbúðir. Mikið er lagt upp úr hönnun og nýtingu rýma íbúða til að ná fram hagkvæmi og auka notagildi. M.a. eru unnið út frá könnunum sem verkefnið hefur gert um viðhorf íbúa til ýmissa þátta, t.d. um notkun og stærð rýma," er haft eftir Ingva í fréttatilkynningu.

Íbúagata hverfisins mun heita Sunnusmári, aðalgatan fær nafnið Silfursmári og torg upp við Smáralindina mun nefnast Sunnutorg.

,,201 Smári er mjög spennandi verkefni, bæði íbúðirnar og hverfið í heild sinni sem og nálægð þess við þjónustu og stofnbrautir. Hugmyndafræðin, hönnunin og skipulagið að baki 201 Smára byggir á nútímalegri nálgun sem ekki hefur verið boðið upp á áður hér á landi. Þetta er stærsta hverfið í Kópavogi sem fer í uppbyggingu á einu bretti með alls 620 íbúðir," er einnig haft eftir Hannesi Steindórssyni, einum eigenda fasteignasölunnar Lind.