Icelandair Group hyggst nú láta framkvæma veðurfarsrannsóknir við Hvassahraun. Þetta er gert í framhaldi af starfi Rögnunefndarinnar svokölluðu en nefndin lagði til í lokaskýrslu sinni að „Flugvallarskilyrði í Hvassahrauni verði fullkönnuð með nauðsynlegum rannsóknum…“ Þessar rannsóknir munu hefjast á næstunni, þegar veðurfarsskilyrði henta. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Icelandair.

Icelandair kemur til með að nýta tækjakost félagsins til að sjá um að gera þessar veðufarsrannsóknir. „Flugprófanirnar fara þannig fram að flugvélum frá Icelandair, sem ekki eru í áætlunarflugi, verður flogið eftir þeim aðflugsferlum sem eru fyrirséðir á nýju mögulegu flugvallarstæði,“ segir einnig í tilkynningunni.

Tækjabúnaðurinn í vélunum mun í kjölfarið skrá og nema veðuraðstæður á svæðinu. Gerir flugfélagið ráð fyrir því að yfirflugið standi með hléum næstu vikur og mánuði - eftir það tekur við úrvinnsla úr rannsóknarvinnunni.