Yfirtökutilboð norska félagsins Fredensborg AS í leigufélagið Heimavelli lauk í gær. Eignarhlutur Fredensborg mun nema um 98,25% af heildarhlutafé Heimavalla eftir uppgjör viðskipta eða um 99,45% þegar leiðrétt hefur verið fyrir eigin hlutum, samkvæmt tilkynningu leigufélagsins til Kauphallarinnar í morgun .
Alls tóku 242 hluthafar tilboðinu sem áttu samtals 2.735.828.198 hluti í Heimavöllum, eða sem nemur 24,32% hlutafjár í félaginu.
Í mars síðastliðnum bárust fréttir um að norska félagið Fredensborg AS hefði gert yfirtökutilboð upp á 17 milljarða króna í leigufélagið , þar sem hluthöfum buðust 1,5 krónur fyrir hvert bréf í félaginu, sem var töluvert yfir hlutabréfaverði félagsins mánuðina þar áður.
Fredensborg og stjórn Heimavalla hafa ákveðið að beita svokölluðum innlausnarrétti, og mun hluthöfum Heimavalla sem innlausnin tekur til, send tilkynning um innlausnina á næstu dögum.
Innlausnarverðið er 1,5 krónur fyrir hvern hlut í Heimavöllum. Er um að ræða sama verð og Fredensborg bauð hluthöfum Heimavalla í yfirtökutilboðinu sem lauk í gær.
Hér má sjá frekari fréttir um Heimavelli og markaðinn fyrir íbúðaleigufélög:
- 16. apríl 2020 - Eigandi Heimavalla efnaður ævintýramaður
- 10. mars 2020 - Komnir með þrjá fjórðu í Heimavöllum
- 9. mars 2020 - Norskt yfirtökutilboð í Heimavelli
- 23. febrúar 2020 - Í frosti hjá lífeyrissjóðunum
- 20. janúar 2020 - Heimavellir og Marel í aðalhlutverki
- 20. janúar 2020 - 10% hækkun við kaup á 10% hlut
- 20. janúar 2020 - Kaupa í Heimavöllum fyrir milljarð
- 30. ágúst 2019 - Samþykktu endurkaup hjá Heimavöllum
- 30. ágúst 2019 - Afkoma Heimavalla batnar milli ára
- 14. júní 2019 - Tóku engum tilboðum
- 23. maí 2019 - Heimavellir lækka um 7,9%
- 22. maí 2019 - Hætta við milljarðakaup í Heimavöllum
- 17. maí 2019 - Hætta við 100 íbúðir á Veðurstofureit
- 23. apríl 2019 - Heimavellir lækka í kjölfar neitunar
- 15. mars 2019 - Erlendur áfram formaður stjórnar
- 14. mars 2019 - Afskráning Heimavalla samþykkt
- 25. febrúar 2019 - Draga til baka hækkun leiguverðs
- 23. febrúar 2019 - Óhefðbundin verðlagning á leigufélögum
- 23. febrúar 2019 - Dýrkeyptur ofsi í neikvæðri umræðu
- 10. febrúar 2019 - Afnám hafta lækki leigu
- 9. febrúar 2019 - Beðið eftir erlendu fjármagni
- 22. janúar 2019 - Seldu íbúðir fyrir 6,2 milljarða í fyrra
- 12. desember 2018 - Hyggjast sækja allt að 12 milljarða
- 20. nóvember 2018 - Gera ráð fyrir 5-7% vexti