Eldsvoðinn í Miðhrauni 4 í Garðabæ mun ekki hafa áhrif á afkomu Regins, sem á hluta hússins, að því er kemur fram í tilkynningu. Eignarhluti Regins í húsinu er 3.390 fermetrar en í heild er húsið 5.488 fermetrar.

Bókfært virði eignarhluta Regins er 580 m.kr. Húsið er að fullu tryggt en brunabótamat þess hluta sem Reginn á er um 700 m.kr. Félagið telur allar líkur á að húsið sé nánast ónýtt. Samkvæmt upplýsingum félagsins urðu ekki slys á fólki.

Um er að ræða iðnaðarhúsnæði, byggt upp með stálgrind og einingum. Húsið hefur verið í fullri útleigu og er stærsti leigutakinn Drífa ehf. ( Icewear).