Heiða Kristín Helgadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Besta flokksins. Hún mun einnig gegna stöðu framkvæmdarstjóra borgarstjórnarflokks Besta flokksins og varaformennsku í flokknum.

S. Björn Blöndal mun taka við starfi aðstoðarmanns borgarstjóra en Heiða Kristín hefur gegnt því starfi undanfarna mánuði. Hann var áður framkvæmdarstjóri flokksins.

Í tilkynningu frá Besta flokknum segir að ráðning Heiðu í stöðu framkvæmdarstjóra sé ætlað að skerpa og efla Besta flokkinn sem virkt afl í íslenskum stjórnmálum.