Heiðar Már Guðjónsson segir að ástæða þess að fjárfestahópur hans hafi ekki fengið að kaupa Sjóvá virðist vera sú að einn eða fleiri í hópnum séu ekki þóknanlegir opinberum yfirvöldum. Þetta segir Heiðar í yfirlýsingu sem send var fjölmiðlum. Nokkuð hefur verið rætt um málefni Heiðars Más og kaup hans á Sjóvá í fjölmiðlum í dag.

Yfirlýsingin í heild:

„Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum sleit hópur undir forystu undirritaðs viðræðum við Seðlabanka Íslands um kaup á hlutum í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. Eins og fram kom í fréttatilkynningu hópsins réði óhæfilegur dráttur á afgreiðslu málsins af hálfu seljenda úrslitum um ákvörðun hans.

Ég sé mig knúinn til að gefa þessa yfirlýsingu vegna ófaglegra vinnubrögð Seðlabanka Íslands, þar sem ég tel að hann hafi ekki farið að lögum við ákvarðanatöku í ferlinu. Nú þegar hefur félag í minni eigu, Ursus ehf., beint kvörtun til Umboðsmanns Alþingis vegna málsins. Þá hef ég upplýst bankaráð seðlabankans um þau atriði sem aflaga hafa farið í málsmeðferð bankans á undanförnum vikum og mánuðum og óskað eftir að ráðið taki málið til sjálfstæðrar skoðunar. Þá hef ég ásamt mínum ráðgjöfum til skoðunar hvort ástæða sé til að krefjast opinberrar rannsóknar á tilteknum þáttum í meðferð málsins. Sérstök ástæða er til að skoða samskipti seðlabankans við tilgreinda fjölmiðla, einkum DV.

Ferill kaupanna hefur verið langur og strangur síðan í upphafi árs. Hópur kaupenda sem undirritaður fór fyrir var valinn til frekari viðræðna í mars eftir að hann skilaði hæstu tilboði í opnu og gagnsæju söluferli, og bauð helmingi hærra verð en næstbjóðandi. Sú niðurstaða að kaupendahópurinn hafi neyðst til að draga tilboð sitt til baka er versta niðurstaða fyrir alla aðila:

·         Seðlabankinn og aðrir seljendur verða af miklum verðmætum, en heildarverð viðskiptanna var um 11 milljarðar, auk þess að þetta kann að leiða til skaðabótaskyldu Seðlabanka Íslands.

·         ESA hefur gert athugasemd við eignarhald ríkisins á Sjóvá og ólögmæt ríkisaðstoð til fyrirtækis á samkeppnismarkaði er nú til rannsóknar hjá stofnuninni. Eignarhald ríkisins á Sjóvá sem ESA hefur gert athugasemd við verður óleyst vandamál þar sem engin lausn er í augsýn.

·         Eignarhald skilanefndar á vátryggingarfélagi er ekki heppilegt frá sjónarhóli hlutverks slíkra aðila.

·         Sjóvá mun líða fyrir það að hafa ekki traustan langtíma eiganda. Það mun að líkindum hafa neikvæð áhrif á starfsfólk og viðskiptavini og þar með rekstur fyrirtækisins.

·         Kaupendahópur sem lagt hefur gríðarlega vinnu og kostnað í 10 mánuði til að undirbúa kaupin, og framtíð fyrirtækisins, hefur gengið frá málinu.

·         Niðurstaðan er einnig sorgleg fyrir íslenskt efnahagslíf sem hefur mikla þörf fyrir endurreisn þar sem nýir aðilar koma að fyrirtækjum.

Ég fæ ekki betur séð en það sem hófst sem faglegt, opið og gagnsætt söluferli hafi breyst í andstæðu sína með valdníðslu og brotum á stjórnsýslulögum og reglum. Tilraun til þess að stýra því hver eignast fyrirtæki í opnu söluferli, þar sem inn í stjórnsýsluframkvæmd virðast hafa blandast ómálefnaleg sjónarmið, pólitík og jafnvel persónuleg sjónarmið. Hljóta allir sem vonuðust eftir nýjum vinnubrögðum í íslensku samfélagi að harma þessa niðurstöðu. Ef fjárfestar geta búist við slíkum vinnubrögðum, jafnvel á æðstu stöðum stjórnsýslunnar, er hæpið að margir hafi hug á að láta til sín taka í uppbyggingu hagkerfisins. Þessi fyrsta einkavæðing eftir hrun leiddi til þess að hæstbjóðendur fengu ekki fyrirtækið, með tilheyrandi kostnaði fyrir almenning, að því er virðist á þeirri forsendu að einn eða fleiri þeirra eru ekki þóknanlegir opinberum yfirvöldum.

Undirritaður og kaupendahópurinn lögðu mikla vinnu í undirbúning kaupanna og fóru í öllu að lögum og reglum. Ég hef ákveðið að leita réttar míns í málinu þar sem ég tel brýnt að vinnubrögð sem þessi verði ekki viðurkenndur hluti af íslensku samfélagi.

Heiðar Már Guðjónsson.“