Dagur B. Eggertsson, Heiða Björg Hilmisdóttir, Skúli Helgason, Kristín Soffía Jónsdóttir og Hjálmar Sveinsson hlutu bindandi kosningu í fimm efstu sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í komandi borgarstjórnarkosningum.

Kosningu lauk kl. 19 í gærkvöld og neyttu 1852 félagsmenn atkvæðisréttar síns í flokksvalinu. Kjörsókn var 33,55%. Auð og ógild atkvæði voru 7.

Atkvæði í fimm efstu sæti féllu þannig:

1. sæti - Dagur B. Eggertsson með 1610 atkvæði i fyrsta sæti, eða 87%.

2. sæti – Heiða Björg Hilmisdóttir með 1126 atkvæði í fyrst og annað sæti.

3. sæti – Skúli Helgason með 708 atkvæði í fyrsta til þriðja sæti.

4. sæti - Kristín Soffía Jónsdóttir með 732 atkvæði í fyrsta til fjórða sæti.

5. sæti – Hjálmar Sveinsson með 779 atkvæði í fyrsta til fimmta sæti.