Þær Heiða Kristín Helgadóttir og Ásta Guðrún Helgadóttir hafa tekið sæti á Alþingi. Þetta er í fyrsta sinn sem þær taka sæti á þingi.

Heiða Kristín Helgadóttir hefur vakið mikla athygli undanfarin fjögur ár. Hún er fyrrverandi aðstoðarmaður Jóns Gnarr borgarstjóra og varð svo framkvæmdastjóri Besta flokksins. Heiða Kristín sest á þing í fjarveru Bjartar Ólafsdóttur.

Ásta Guðrún Helgadóttir er varamaður Jóns Þórs Ólafssonar þingmanns Pírata.