Tap Sýnar á öðrum ársfjórðungi nam 215 milljónum króna sem er 206 milljóna króna aukning frá sama tímabili 2018, þegar tapið nam 4 milljónum króna. Hagnaður á fyrri árshelmingi ársins nam 455 milljónum króna sem er 413 milljóna hækkun á milli tímabila.

Tekjur á öðrum ársfjórðungi námu 5.023 milljónum króna sem er 3% lækkun á milli tímabila. Tekjur á fyrri árshelmingi lækkuðu um 189 milljónum króna milli ára, eða um 2%.

EBITDA félagsins nam 1.216 milljónum króna á ársfjórðungnum í samanburði við 1.279 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 24,2% á öðrum ársfjórðungi 2019 samanborið við 24,6% á öðrum ársfjórðungi 2018. EBITDA á fyrri árshelmingi 2019 nam 2.476 milljónum króna og lækkaði um 8 milljónir króna miðað við fyrri árshelming 2018.

Uppfærðar EBITDA horfur fyrir 2019 eru um 5,6 milljarðar króna. Horfur fyrir frjálst sjóðsflæði haldast óbreyttar en ljóst að félagið er að enda í neðri enda þess bils, 1,6 – 2,0 milljarða króna að mati félagsins. Útgefnar horfur vegna heildarfjárfestingar ársins haldast óbreyttar á bilinu 3,8-4,2 milljörðum króna.

Tekjusvið heyra nú beint undir Heiðar

„Afkoma síðasta ársfjórðungs eru vonbrigði. Fyrri spár stóðust engan veginn. Helstu ástæður eru verðlækkanir og frítilboð á fjarskiptamarkaði auk þess sem kostnaður á fjölmiðlamarkaði var umfram áætlanir,“ segir Heiðar Guðjónsson.

„Ný framkvæmdastjórn hefur komið miklu í verk frá því hún tók við eftir síðasta uppgjör í maí. Við höfum hagrætt mikið í rekstri, en kostnaðarlækkun mun nema yfir 50 milljónum á mánuði þegar hún kemur fram í vetur. Deildir hafa verið sameinaðar, millistjórnendum og almennu starfsfólki hefur fækkað auk þess sem endursamið hefur verið við birgja.

Rekstraráætlanir hafa verið endurgerðar, sem mun skila sér í áreiðanlegri spám. Allt fyrirtækið fór í gegnum stefnumótun í júní, með mikilli þátttöku starfsfólks, og niðurstaðan var einróma og skýr. Við höfum því samstilltan hóp sem vinnur nú að sameiginlegum markmiðum. Í framhaldi af stefnumótun og áherslubreytingum voru deildir færðar til í skipuriti og þannig styttast boðleiðir og samstarf verður enn betra.

Tekjusvið eru núna skýrt afmörkuð og heyra beint undir forstjóra. Nýtt svið, samskiptasvið, sem markaðssvið rennur m.a. inn í hefur verið stofnað. Búið er að vinna nýja samskiptagreiningu og endurskoða vörumerki félagsins.
Áhersla vetrarins er að einfalda og bæta þjónustu við viðskiptavini. Við höfum frábærar vörur sem við erum stolt af og munum kynna frekar í vetur.“