Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar, hefur keypt hlutabréf í fyrirtækinu fyrir 55,7 milljónir króna. Alls keypti Heiðar 2 milljónir hluta á genginu 27,85 krónur á hlut. Þetta kemur fram í tilkynningu Sýnar til Kauphallarinnar.

Eftir þessi viðskipti á Heiðar rúmlega 27 milljónir hluta og nemur verðmæti heildareignarhluts hans því um 756 milljónum króna, miðað við gengi bréfa Sýn þegar þessi frétt er skrifuð.