Nú þegar seðlabankar heimsins keppast hver við annan um að prenta peninga, til að borga fyrir fjárlagahalla og björgun fjármálafyrirtækja, þá er hafið kapphlaup um að verðfella gjaldmiðla heimsins.

Þetta segir Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir, í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.

Heiðar Már segir þó að einn sá flokkur sem standi af sér þessa prentun séu hrávörur.

„Hrávörur eru af skornum skammti og verðgildi þeirra hefur farið hækkandi, og mun að öllum líkindum halda því áfram, svo lengi sem seðlabankar halda prentvélunum gangandi,“ segir Heiðar Már.

„Lönd með digra sjóði, svo sem Kína, hafa áttað sig á þessu og reyna því nú að kaupa hrávörur beint, eða aðgang að þeim, í stað þess að geyma fjármuni sína í myntum sem alltaf er verið að verðfella með peningaprentun. Það er nefnilega ekki hægt að prenta hrávörur. Sú staðreynd að stærsta sendiráðið á Íslandi er hið kínverska, þrátt fyrir að Ísland eigi nánast engin viðskipti við Kínverja, segir sína sögu um sóknina í hrávörur á norðurslóðum.“

Þá fjallar Heiðar Már um upptöku annars gjaldmiðils í grein sinni og víkur umræðunni að evrunni.

„Ef við skoðum [...] hvernig útflutningur Íslands skiptist þá eru þar tvær stórar stoðir: orka, í formi áls, og svo fiskur. Hvort tveggja hrávörur sem munu hækka mjög í verði, hvað sem peningaprentun líður, því mannkyninu heldur áfram að fjölga mun hraðar en hrávöruframleiðslan eykst,“ segir Heiðar Már.

„Þeir álitsgjafar sem telja að það sé fráleitt að taka upp aðra mynt en evru, vegna þess að Ísland framleiðir ekki í þeim myntum, virðast vita harla lítið um útflutning landsins eða hrávörur. Sannleikurinn er sá að hrávörur heimsins eru opinberlega verðlagðar í dollar. Raunin er hins vegar sú að hrávörur hafa sitt eigið verð og bindast því ekki einni mynt eins og sést hefur síðustu ár þegar verð þeirra hefur hækkað í öllum myntum. Samkvæmt íslenskum hagtölum er álframleiðsla Íslands í evrum, einfaldlega vegna þess að álið er sent til umskipunar í Rotterdam! Ef við lítum svo til þriðju stoðar útflutnings, ferðamannaiðnaðar, þá er meirihluti tekna í öðrum myntum en evru.“

Heiðar Már segir að það land sem líkist mest Íslandi hvað varðar útflutning sé Kanada. Kanadamenn eigi næga orku, vatn og matvæli.

„Kanada er ung þjóð með framtíðina fyrir sér, líkt og Ísland. Kanada skuldar lítið, hefur traust fjármálakerfi og frábæran seðlabanka,“ segir Heiðar Már.

„Kanada og Ísland framleiða hrávörur, sem hafa alþjóðlegt verðgildi, en ekki bara í einni mynt. Íslendingar hafa sára reynslu af notkun myntar sem stöðugt rýrnar í verðgildi. Sú mynt sem flestir telja að haldi verðgildi sínu næstu áratugi er Kanadadollar. Og það sem meira er, Kanadamenn vilja gjarnan að við notum þeirra mynt.“

Sjá grein Heiðars Más í heild sinni.