Verið er að sýna íslensku kvikmyndina Svartur á leik á kvikmyndahátíðinni í Berlín, en hún sló eftirminnilega í gegn í Rotterdam, þar sem hún var heimsfrumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni þar í borg.

Frumsýnd hér 2. mars

Heiðar Már Guðjónsson er einn framleiðenda myndarinnar og er núna staddur í Berlín. „Viðbrögðin í Rotterdam voru mjög góð og við vonum að þau verði það líka hérna. Umfjöllun um myndina hefur allavega verið mjög góð. Svartur á leik verður svo frumsýnd á Íslandi þann 2. mars og síðar í þeim mánuði á kvikmyndahátíð í Hong Kong, þannig að það er nóg að gera.“