Dagur verkfræðinnar var haldinn í fyrsta sinn 10. apríl síðastliðinn. Markmiðið með deginum er að kynna verkfræðina, störf verkfræðinga og ekki síst efla tengsl og samheldni meðal íslenskra verkfræðinga. Fjölmenn ráðstefna var haldin á Hilton Nordica þar sem voru fluttir fjölbreyttir fyrirlestrar um viðfangsefni verkfræðinga á hinum ýmsu sviðum.

Þá voru þrír verkfræðingar sæmdir heiðursmerki Verkfræðingafélags Íslands en það voru þau Sigurður Arnalds byggingarverkfræðingur, Sigríður Ágústa Ásgrímsdóttir rafmagnsverkfræðingur og Björn Dagbjartsson efnaverkfræðingur.

Það er Merkisnefnd VFÍ sem útnefnir þá einstaklinga sem eru sæmdir heiðursmerki félagsins. Merkið má veita í viðurkenningarskyni fyrir vel unnin störf á sviði verkfræði eða vísinda, fyrir framtak til eflingar verkfræðingastéttinni í heild eða fyrir félagsstörf í þágu verkfræðingastéttarinnar.