Heiður Björk Friðbjörnsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs Samkaupa og mun taka við starfinu í mars af Brynjari Steinarssyni. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.
„Ég er full tilhlökkunar að koma til starfa hjá Samkaupum, það verður gaman að takast á við ný verkefni og taka þátt í þeirri vegferð sem framundan er hjá fyrirtækinu,“ er haft eftir Heiði Björk í tilkynningunni.
Heiður Björk hefur víðtaka reynslu á sviðum fjármála en hún hefur starfað hjá Arion banka síðan 2007, m.a. sem fjármálaráðgjafi, sérfræðingur í fyrirtækjalánum, viðskiptastjóri fyrirtækja og síðast sem þjónustustjóri einstaklinga í aðalútibúi bankans.
Heiður Björk hefur lokið MBA námi við Háskóla Íslands, er með BS.c. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík, með próf í verðbréfamiðlun og vottaður sem fjármálaráðgjafi.