Árið 2011 beindi Ríkisendurskoðun tveimur ábendingum til heilbrigðisyfirvalda vegna viðskipta þeirra við Heimilislæknastöðina ehf. sem rekur Heilsugæsluna Lágmúla. Ríkisendurskoðun benti Sjúkratryggingum Íslands á að hraða gerð nýs samnings og tryggja að honum yrði fylgt þar sem eldri samningur giltu til ársloka 2000 en var ekki endurnýjaður. Áður en hægt væri að gera nýjan samning þyrfti einnig að gera upp fjárskuldbindingar félagsins vegna eldri samningsins, þar sem um er að ræða óuppgerðar lífeyrisskuldbindingar og kostnað vegna endurnýjunar á búnaði Heilsugæslunnar Lágmúla.

Nú þremur árum síðar hefur nýr þjónustusamningur ekki verið gerður né heldur hefur farið fram uppgjör á fjárskuldbindingum Heimilislæknastöðvarinnar ehf. vegna eldri samnings. Þetta sé vegna ólíkrar túlkunar aðila á fjárskuldbindingum læknastöðvarinnar. Ríkisendurskoðun fagnar þó því að síðustu vikur hafi farið fram viðræður milli þeirra sem gefi góðar vonir um að lausn sé í sjónmáli og því telur að svo stöddu ekki rétt að ítreka ábendingar sínar frá 2011. Stofnunin hvetur þó aðila til að ljúka málinu sem allra fyrst svo að nýr samningur geti tekið gildi í ársbyrjun 2015.