Landssöfnun Kiwanishreyfingarinnar til styrktar geðsjúkum og aðstandendum þeirra, Lykill að lífi, hófst nú í morgun með því að Guðlaugi Þór Þórðarsyni heilbrigðisráðherra var afhentur fyrsti K-lykillinn.
Bernhard Jóhannesson, formaður K-dagsnefndar, Gylfi Ingvarsson, umdæmisstjóri Kiwanis, og Matthías G. Pétursson kjörumdæmisstjóri Kiwanis, heimsóttu Guðlaug Þór í heilbrigðisráðuneytið og afhentu honum lykilinn. Landssöfnunin stendur fram á sunnudag og rennur ágóðinn að þessu sinni til þriggja málefna; Geðhjálpar, BUGL og Forma.
Sparisjóðirnir á Íslandi, Toyota, Olís og Bónus eru bakhjarlar verkefnisins. Gengið verður í hús um land allt, sölumenn verða við verslunarmiðstöðvar og aðra fjölfarna staði, auk þess sem leitað er til fyrirtækja um stuðning. Sparisjóðirnir á Íslandi eru fjárvörsluaðili söfnunarinnar og má leggja málefninu lið með því að fara inn á heimabanka sparisjóðanna og millifæra. Hægt er að leggja inn á reikning söfnunarinnar; 1100-26-55000, kennitala 640173-0179. K-lykillinn verður ennfremur til sölu í öllum verslunum Bónuss og á þjónustustöðvum Olís dagana 4.-7. október.