Hafrannsóknastofnun leggur til að heildaraflamark hrognkelsis á fiskveiðiárinu 2019/2020 verði 4.646 tonn og að upphafsaflamark fiskveiðiársins 2020/2021 verði 1.459 tonn.

Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um endanlegt heildaraflamark fyrir hrognkelsi fiskveiðiárið 2019/2020 byggir á stofnvístölu úr stofnmælingu botnfiska í mars 2020. Niðurstöður mælinga liggja nú fyrir og reyndist vísitalan vera 7,2 sem er hækkun frá fyrra ári (6,2).

Í frétt frá Hafrannsóknastofnun segir að stofnvísitala hrognkelsis hafi sveiflast mikið milli ára sem endurspegli að hluta til óvissu í mælingunum. Vegna þessa vegur stofnvísitala sama árs 70% á móti 30% vægi vísitölu fyrra árs við útreikning ráðlagðs hámarksafla.

„Viðmiðunargildi ráðgjafareglu fyrir árið 2020 er 0.67 og byggir á löndunartölum áranna 1985-2019. Í samræmi við þessar niðurstöður leggur Hafrannsóknastofnun til að heildaraflamark hrognkelsis á fiskveiðiárinu 2019/2020 verði 4.646 tonn. Hafrannsóknastofnun leggur jafnframt til að upphafsaflamark fiskveiðiársins 2020/2021 verði 1.459 tonn.“

Ráðlagt heildaraflamark fiskveiðiársins 2018/2019 var 4.805 tonn.