Heildarafli íslenskra fiskiskipa var rúmlega 97 þúsund tonn í október 2014, 10,8% meiri en í sama mánuði árið áður. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands .

Á 12 mánaða tímabili var heildaraflinn u.þ.b. 1.073 þúsund tonn og minnkaði um 21,6% miðað við fyrra 12 mánaða tímabil. Magnvísitala á föstu verðlagi er um 3,8% lægri miðað við október í fyrra, en á 12 mánaða tímabilinu nóvember 2013 til október 2014 hefur orðið lækkun á magnvísitölunni um 9,6% miðað við sama tímabil ári fyrr.