Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum nóvembermánuði var 1,7% meiri en í nóvember 2006, sé hann metinn á föstu verði. Það sem af er árinu hefur fiskaflinn dregist saman um 4,4% á föstu verði miðað við sama tímabil 2006.

Í frétt frá Hagstofu Íslands segir að afl í nóvember 2007 hafi numið 106.106 tonnum samanborið við 105.713 tonn í nóvember 2006.

Botnfiskafli jókst um tæplega 290 tonn frá nóvembermánuði 2006 og nam 35.900 tonnum. Þorskafli dróst saman um rúmlega 3.700 tonn og karfaaflinn um tæplega 430 tonn. Ýsuaflinn jókst um rúmlega 4.000 tonn og ufsaaflinn um tæplega 420 tonn.

Flatfiskaflinn dróst saman um rúmlega 260 tonn milli ára. Afli uppsjávartegunda nam tæpum 68.900 tonnum og var eingöngu síld. Aukning í uppsjávarafla nemur tæpum 330 tonnum frá nóvembermánuði 2006. Skel- og krabbadýraafli var 97 tonn samanborið við 58 tonna afla í nóvember 2006.