Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum janúarmánuði, metinn á föstu verði, var 14% minni en í janúar 2007. Alls nam aflinn 73.393 tonnum í janúar 2008 samanborið við 81.902 tonn í janúar 2007.

Botnfiskafli dróst saman um tæp 7.300 tonn frá janúarmánuði 2007 og nam  26.100 tonnum. Þorskafli dróst saman um tæp 6.300 tonn og ufsaaflinn um rúm 100 tonn. Ýsuaflinn jókst aftur á móti um rúm 1.000 tonn miðað við janúar 2007.

Síldar- og kolmunnaafli jókst Afli uppsjávartegunda nam rúmum 46.200 tonnum sem er tæpum 200 tonnum minni afli en í janúar 2007. Síldarafli jókst um 15.700 tonn og kolmunnaafli um tæp 2.600 tonn en loðnuafli dróst saman um tæp 19.400 tonn. Flatfiskaflinn stóð í stað á milli ára, var rúm 900 tonn. Skel- og krabbadýraafli  var 68 tonn samanborið við 151 tonna afla í janúar 2007. Aflinn í tonnum sýnir magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.