Trollið tekið á Vestmannaey VE. (Mynd: Kristinn Freyr Þórisson)
Trollið tekið á Vestmannaey VE. (Mynd: Kristinn Freyr Þórisson)
© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum júnímánuði, metinn á föstu verði, var 5,8% meiri en í júní 2010. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 6,8% miðað við sama tímabil 2010, sé hann metinn á föstu verði. Aflinn nam alls 80.224 tonnum í júní 2011 samanborið við 85.181 tonn í júní 2010, er fram kemur á vef Hagstofu Íslands.

Þá nam botnfiskafli um 36.700 tonnum sem er 3.600 tonna aukning frá júní 2010. Þar af var þorskaflinn tæp 9.600 tonn, sem er aukning um rúm 200 tonn frá fyrra ári. Ýsuaflinn nam 2.000 tonnum sem er um 1.900 tonnum minni afli en í júní 2010. Karfaaflinn jókst um rúm 2.600 tonn samanborið við júní 2010 og nam 4.700 tonnum. Tæp 5.400 tonn veiddust af ufsa sem er tæplega 400 tonnum meiri afli en í júní 2010. Um 5.700 tonn veiddust af öðrum botnfiskafla, sem er nær sama magn og í júní 2010.

Tæplega 40.000 tonnum var landað af uppsjávarafla í júní 2011 samanborið við um 47.500 tonna afla í júní 2010. Þar af var 15.400 tonnum landað af síldarafla, sem er um 9.900 tonna samdráttur frá fyrra ári. Rúm 24.300 tonn veiddust af makríl samanborið við 22.200 tonn í júní 2010.

Flatfiskaflinn var rúm 2.000 tonn í júní 2011 sem er rúmlega 900 tonnum minni afli en í júní 2010. Skel- og krabbadýraafli nam um 1.500 tonnum samanborið við tæplega 1.300 tonna afla í júní 2010.