Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum nóvembermánuði, metinn á föstu verði, var 8,7% minni en í nóvember 2005. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 5,2% miðað við sama tímabil 2005, sé hann metinn á föstu verði, segir í tilkynningu Hagstofu Íslands.

Aflinn nam alls 104.567 tonnum í nóvember 2006 samanborið við 98.478 tonn í nóvember í fyrra. Heildarafli íslenskra skipa það sem af er árinu 2006 nemur rúmum 1.250.000 tonnum og er það rúmlega 345.000 tonna minni afli en á sama tímabili árið 2005.

Botnfiskafli dróst saman um tæp 9.900 tonn frá nóvembermánuði 2005 og nam rúmlega 35.000 tonnum. Þorskafli dróst saman um tæp 4.700 tonn, ýsuaflinn um rúm 2.100 tonn og ufsaaflinn um tæplega 2.500 tonn.

Flatfiskaflinn dróst lítillega saman og var tæp 1.500 tonn. Afli uppsjávartegunda nam tæpum 68.000 tonnum og var nær allur síldarafli. Aukning uppsjávarafla nemur rúmum 16.000 tonnum. Skel- og krabbadýraafli var 58 tonn samanborið við 530 tonna afla í nóvember 2005.

Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að samsetning aflans sé sú sama og hún var á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að verð á einstökum fisktegundum er misjafnt, segir í tilkynningunni.