Heildareignir innlánsstofnana námu 2.987,6 milljörðum króna í lok maí 2013 og hækkuðu um 71,3 milljarða í mánuðinum. Af heildareignum námu innlendar eignir 2.592,2 milljörðum króna og hækkuðu um 54 milljarða, samkvæmt nýlegum hagtölum Seðlabanka Íslands.

„Erlendar eignir innlánsstofnana námu 395,5 ma.kr. og hækkuðu um 17,4 ma.kr. í maí. Skuldir innlánsstofnana námu 2.458,7 ma.kr. í lok maí og hækkuðu um 65,1 ma.kr. í mánuðinum. Innlendar skuldir námu 2.306,9 ma.kr. og hækkuðu um 45,3 ma.kr. Erlendar skuldir innlánsstofnana námu 151,7 ma.kr. og hækkuðu um 19,8 ma.kr. í maí. Eigið fé innlánsstofnana nam 528,9 ma.kr. í lok maí,“ segir í umfjöllun á vefsíðu Seðlabankans.

„Útlán Arion banka hf., Íslandsbanka hf. og Landsbankans hf. eru í þessum tölum metin á kaupvirði þ.e. því virði sem þessir aðilar keyptu útlánasafnið á af fyrirrennurum sínum. Lánasöfnin eru endurmetin reglulega sem getur leitt til hækkunar eða lækkunar á virði einstakra lána. Breytingar á útlánasafni þessara aðila geta því stafað af endurmati á virði lána eða af raunverulegum lánahreyfingum.“