Arion banki.
Arion banki.
© Axel Jón Fjeldsted (VB MYND/AXEL JÓN)
Heildareignir innlánsstofnana námu 2.761 milljörðum króna í lok maí 2011 og lækkuðu um 6,4 milljarða króna frá apríl. Innlendar eignir námu 2.469 milljörðum króna og lækkuðu um 7,4 milljarða króna. Erlendar eignir námu 292 milljörðum króna og hækkuðu um 1 milljarð króna á milli mánaða. Heildarskuldir innlánsstofnana námu 2.313 milljörðum króna og hækkuðu um 4,6 milljarða króna frá apríl. Innlendar skuldir námu 2.130 milljörðum króna og hækkuðu um 10 milljarða króna frá fyrri mánuði. Erlendar skuldir lækkuðu um 5,2 milljörðum króna og stóðu í 182 milljörðum króna í lok mánaðarins. Eigið fé innlánsstofnana nam 448 milljörðum króna í lok maí. Kemur þetta fram í Hagtölum Seðlabanka Íslands.


Útlán Arion banka hf., Íslandsbanka hf. og NBI hf. eru í þessum tölum metin á kaupvirði þ.e. því virði sem þessir aðilar keyptu útlánasafnið á af fyrirrennurum sínum. Lánasöfnin eru endurmetin reglulega sem getur leitt til hækkunar eða lækkunar á virði einstakra lána. Breytingar á útlánasafni þessara aðila geta því stafað af endurmati á virði lána eða af raunverulegum lánahreyfingum. Seðlabankinn hefur nú samræmt gögn um útlán og niðurfærslur bankanna þriggja sem urðu til í október 2008. Þessi samræming leiðir til þess að höfuðstóll útlána þessara þriggja aðila hækkar, frá fyrri birtingu gagnanna, ásamt framlagi á niðurfærslureikning þeirra.