Heildareignir innlánsstofnana námu 3.009 milljörðum króna í lok júní síðastliðins og hækkuðu um 21 milljarð króna eða um 0,7% í mánuðinum. Af heildareignum námu innlendar eignir 2.583 milljörðum króna og lækkuðu um 3 milljarða í mánuðinum eða um 0,1%. Erlendar eignir innlánsstofnana námu 425 milljörðum króna og hækkuðu um 24 milljarða króna í júní eða um 6%.

Skuldir innlánsstofnana námu 2.482 milljörðum í lok júní og hækkuðu um 23 milljarða í mánuðinum eða um 0,9%. Innlendar skuldir námu 2.346 milljörðum króna og hækkuðu um 39,5 milljarða króna í mánuðinum. Erlendar skuldir innlánsstofnana námu 136 milljörðum króna og lækkuðu um 16,1 milljarð í júní eða um 10,6%. Eigið fé innlánsstofnana nam 527 milljörðum króna í lok júní og lækkaði um 2,4 milljarða í júní eða um 0,4%.

Hægt er að lesa um efnahagsreikning innlánsstofnana á vef Seðlabankans.