Heildareignir tryggingarfélaganna námu 151,5 milljörðum króna í lok nóvember og jukust um 1,8 milljarða milli mánaða.

Sjóður og bankainnstæður jukust um 15,0% frá fyrra mánuði og námu 17,8 milljörðum króna í nóvemberlok.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans.

Þar kemur fram að sjóður og bankainnstæður námu 11,7% af heildareignum samanborið við 4,7% af heildareignum sama mánuð árið áður.

Eigið fé tryggingarfélaga stóð í 55,1 milljarði króna í lok mánaðarins og hækkaði um 3,7 milljarða milli mánaða.