Heildareignir verðbréfa- og fjárfestingarsjóða voru 719,3 milljarðar króna í lok júlí og höfðu aukist um 24,8 milljarða króna í mánuðinum.

Stærsta hluta hækkunarinnar er hægt að rekja til aukningar á fjárfestingum í innlánum sem hækkuðu um 22,8 milljarða króna.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans.

Þar kemur fram að sjóður og bankainnistæður hækkuðu í mánuðinum um 3,8 milljarða króna og kröfur á lánastofnanir um 6,9 milljarða króna.

Erlend verðbréfaeign lækkaði í júlí um 6,5% á meðan innlend verðbréfaeign hækkaði um 3,6%.

Útgefin hlutdeildarskírteini voru 705,3 milljarðar króna í lok júlí sem er 2,8% hækkun milli mánaða.