Heildarfasteignamat seldra atvinnuhúsnæða var 3.083 milljónir króna á höfuðborgarsvæðinu en 714 milljónir króna á landsbyggðinni í maí 2011 eða alls 3.797 milljónir krónan fyrir landið allt. Alls var 37 skjölum um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í frétt Þjóðskrár Íslands.

Fasteignamarkaður - Myndir
Fasteignamarkaður - Myndir
© BIG (VB MYND/BIG)
Á sama tíma voru 14 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráðir í kaupskrá og 17 utan þess. Heildarupphæð samninga á höfuðborgarsvæðinu var 176 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 191 milljón króna. Þá var heildarupphæð samninga utan höfuðborgarsvæðisins 275 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 255 milljónir króna. Af þessum samningum voru 6 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.