Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum marsmánuði, metinn á föstu verði, var 8,7% minni en í mars 2006. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 3,5% miðað við sama tímabil 2006, sé hann metinn á föstu verði, segir í tilkynningu Hagstofunnar.

Aflinn nam alls 161.078 tonnum í mars 2007 samanborið við 133.714 tonn í mars 2006.

Botnfiskafli dróst saman um tæplega 7.600 tonn frá marsmánuði 2006 og nam tæpum 53.000 tonnum. Þorskafli dróst saman um rúm 800 tonn, ýsuaflinn dróst saman um rúm 3.300 tonn og ufsaaflinn dróst saman um tæplega 600 tonn.

Flatfiskaflinn dróst saman og var 1.630 tonn. Afli uppsjávartegunda nam rúmum 106.300 tonnum og var allur loðna og kolmunni. Aukning uppsjávarafla nemur tæpum 36.500 tonnum. Skel- og krabbadýraafli var 148 tonn samanborið við 530 tonna afla í mars 2006.

Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar, segir í tilkynningunni.