Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmum 4,8 milljörðum króna í maí. Þar af var tæplega 1,1 milljarður króna vegna leiguíbúðalána en almenn útlán námu tæplega 3,8 milljörðum króna.

Þetta kemur fram á vef Íbúðarlánasjóðs.

Meðallán almennra útlána nam tæplega 9,8 milljónum króna.

Alls jukust heildarútlán Íbúðalánasjóðs því um 15% frá fyrra mánuði, en meðallán almennra útlána sjóðsins lækkuðu um 6% á sama tímabili.

Sjá mánaðarskýrslu hér.