Á fjórða ársfjórðungi 2007 jókst heildarlaunakostnaður um 9,6% í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu frá fyrri ársfjórðungi.

Á sama tímabili jókst heildarlaunakostnaður í samgöngum og flutningum um 9,3%, í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð um 7,8% og í iðnaði um 6,2%. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna jókst um 6,2% í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu, um 6,0% í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, um 3,4% í samgöngum og flutningum og um 2,2% í iðnaði milli þriðja og fjórða ársfjórðungs 2007.

Árshækkun heildarlaunakostnaðar frá fjórða ársfjórðungi 2006 var á bilinu 5,1% til  7,8%, mest í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu en minnst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð.

Vísitala launakostnaðar, sem gefin er út ársfjórðungslega, sýnir breytingar á launakostnaði á vinnustund. Vísitalan er kostnaðarvísitala sem ekki er leiðrétt fyrir breytingum í samsetningu vinnuafls og vinnustunda. Breytingar á vísitölu launakostnaðar geta því endurspeglað verðbreytingu vinnustundar, breytt hlutfall yfirvinnustunda, breytt hlutfall vinnuafls með há/lág laun eða samspil umræddra þátta.